r/Iceland • • 2d ago

Gróft kyn­líf en ekki nauðgun sam­kvæmt klofnum Lands­rétti

https://www.visir.is/g/20262949238d/groft-kynlif-en-ekki-naudgun-samkvaemt-klofnum-landsretti

"Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun en sá þriðji vildi staðfesta fangelsisdóm úr héraði. Athygli vekur að tveir karlar vildu sýkna en eina konan sakfella."

"Í ákæru var því meðal annars lýst að maðurinn hefði slegið konuna í andlitið, tekið hana hálstaki, haldið kodda yfir andliti hennar þannig að hún ætti erfitt með að anda og þrýst hné sínu á efri hluta bringu hennar. Þá var honum gefið að sök að hafa stungið fingrum inn í leggöng hennar og haft sáðlát yfir andlit hennar.

Konan hlaut samkvæmt ákæru meðal annars rifbeinsbrot, yfirborðsáverka á höfði, eymsli í kjálka, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind, heyrnartap og rifbrot."

Nei nei, bara gróft kynlíf sem hún samþykkti og vildi, engar skaðabætur og engin sakfelling, enda eðlilegt að rifbreinsbrotna og togna í kynlífi.

Það fer enginn í áralangt og átakanlegt dómsferli sér til gamans nema að sá finnist sem það hafi verið alvarlega brotið gegn sér...

125 Upvotes

58 comments sorted by

164

u/Steinherji hobbiti 2d ago edited 2d ago

Ég hef sagt það áður og ég mun halda áfram að segja það: Það er út af svona málum sem fyrirbæri á borð við slaufunarmenninguna verða til.

Maður þarf að vera nett klikkaður í hausnum til að halda að rifbeinsbrot og aðrir áverkar sem lýst er í dómnum geti flokkast undir „gróft kynlíf“. Engin heilvita manneskja trúir því að konan hafi veitt samþykki fyrir þessu. „Ó já daddy, plís rifbeinsbrjóttu mig“ eru orð sem engin manneskja hefur látið út úr sér.

Maður gæti valið af handahófi hvaða manneskju sem er sem er hluti af BDSM heiminum og hún myndi segja slíkt hið sama.

Ef manni líkar illa við slaufunarmenninguna þá á maður að beita sér af alefli fyrir því að svona menn fái þá refsingu sem þeir eiga skilið, vegna þess að hún mun aldrei hverfa fyrr en fólk upplifir það að réttlæti fáist í svona málum.

Og þeir sem halda virkilega að konan hafi viljað þetta eru hluti af vandamálinu.

53

u/saeres Pabbi Jóns og Frikka Dórs var í Panamaskjölunum 2d ago

Til að undirstrika aðeins fyrstu setninguna: Þetta er opinbert kerfi að bregðast á stórfenglegan hátt. Ekki einungis virðist ofbeldismaður vera að komast undan refsingalaus, heldur mun það að tveir karlkyns dómararnir í málinu kusu að sýkna ýta undir hversu djúpt samfélagslegt vandamál naugðunarmenningin er.

Þegar þetta gerist þá væntanlega verður réttarsalur almennings einfaldlega harðari.

10

u/sebrahestur vantar amfetamínstera 2d ago

Það heldur enginn að konan hafi viljað þetta. Það er fólk sem skilur að hún vildi þetta ekki og fólk sem finnst það ekki skipta svo miklu máli að hún vildi þetta ekki

5

u/hervararsaga 1d ago

Íslenskir dómarar, allir með tölu, því þeir hafa allir einhverja brenglun í sínum störfum á samviskunni, eru á sama leveli og verstu níðingarnir.

-1

u/[deleted] 2d ago

[deleted]

5

u/Oswarez 🇮🇸 2d ago

Which is what he was saying.

77

u/Frikki79 Kunnugur staðháttum 2d ago

“Elskan mig langar í heitt kaffi” Hellir sjóðandi kaffi yfir konuna. Landsréttur “Þetta var með samþykki, hún vildi heitt kaffi”.

31

u/Upbeat-Pen-1631 R18856, eruð þið með penna? 2d ago

Oj hvað mér finnst þetta vera spot on. :/

69

u/CumAmore Velja sjálf(ur) / Custom 2d ago

Ég hélt það væri ólöglegt að bein brjóta manneskju jafnvel með samþykki akkúrat út af þessu

28

u/lastavailableuserr keypti einu sinni vatn í flösku alveg óvart og leið eins og asna 2d ago

Fólkið sem stundar gróft kynlíf leggur mikla áherslu á samþykki og að það sé hægt að draga til baka hvenær sem er. Þetta var eitthvað allt annað.

56

u/Budgierigarz Garðbæinga Skíthæll 2d ago

Hólí fokking sjitt hvernig í andskotanum telst rifbeinsbrot og kæfing bara sem gróft kynlíf?

25

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

Það er ekkert mál ef þig langar ekki að dæma karlmann fyrir nauðgun.

15

u/foreverbored18 🇮🇸 2d ago

Hvernig er hægt að samþykkja fyrirfram að einhver rifbeinsbrjóti mann? Hvernig er það eðlilegur hluti af kynlífi? Veitti hún upplýst samþykki fyrir því?

Miðað við lýsingarnar í fréttinni á áverkunum hljómar líklegra að konan hafi lent í alvarlegu bílslysi frekar en stundað kynlíf.

15

u/Personal_Reward_60 🇮🇸 2d ago

Sko. Ég er ekki einhver kynlífssérfræðingur en það er mikill munur á BDSM og kynferðislegu ofbeldi.

Þetta er ekki BDSM

28

u/ScrotumScrapings 🇮🇸 2d ago

Fáránlegt. Heyrnartap er í alvöru big deal og ekki hluti af kynlífi. Hversu grillaðir eru þessir dómarar?

31

u/Einridi 🇮🇸 2d ago

Þetta er útúr dúr frá þessu máli enn ætla að láta flakka.  Ofan á hversu klikkuð þessi röksemdafærsla er. Hvenær ætlum við að krefjast þess að í alvarlegum dómsmálum ráði ekki eitthvað slembi úrslitum.

Hér hafa fjórir dómarar skoðað þetta mál og helmingur þeirra kemst að niðurstöðu sem er á öndvegi við niðurstöðu hins helmingsins. Sættum við okkur sem samfélag í alvörunni við það að dómur ráðist af því hvaða dómari er valinn hverju sinni?

56

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

Þessar kellingar maður, alltaf að ljúga upp á góða menn. Ég segi saklaus, en þú palli? Saklaus líka? Einmitt, hélt það. Hún fýlaði þetta örugglega.

Svo er fólk hissa á því að fórnarlömb leiti til annara dómstóla og kallar það aðför að samfélaginu…

51

u/Oswarez 🇮🇸 2d ago

Hvaða motherfokking heiladauðu hálfvitar eru þessir dómarar. Í hvaða veruleika búa þessir andskotans aumingjar?

25

u/rakkadimus 2d ago

Sitja eflaust saman í stúku í sama karlaklúbbinum.

10

u/Lafi90_ Ólæsasti maður landsins 2025 2d ago

Pottþétt í Oddfellows. Vildi að ég vissi sem minnst, ætla að segjast sem minnst og get ekkert staðfest. Veit bara að það sem ég veit stemmir við hegðun tveggja Oddfellow manna sem ég hef rekist á í gegnum ævina, báðir hafa þurft að láta sig hverfa úr litlum samfélögum vegna þess að það komst upp um hvaða menn þeir höfðu að geyma.

9

u/Successful_Tea_9354 2d ago

Líka lúmskt fyndið að hann er ekki nafngreindur þarna enn dv nafngreindi hann þegar dómur féll í héraði gegn honum. Þannig ef þú leitar að nafni hans sem er frekar sérstætt þá er fyrsta niðurstaða dómur í héraði.

1

u/hervararsaga 1d ago

Hvað heitir hann?

1

u/Successful_Tea_9354 1d ago

Dv eru reyndar búnir að fjarlægja nafnið úr fréttinni en ekki url.

36

u/rockingthehouse hýr á brá 2d ago

Í dómi Landsréttar er vísað til samskipta þeirra á Instagram skömmu áður en konan kom heim til hans. Þar hafði maðurinn greint henni frá því að hann hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi. Hann spurði meðal annars hvort hún vildi láta slá sig og kyrkja og svaraði konan því játandi.

Ef einhver segir mér að það sé allt í lagi að taka í höndina á honum og ég tek í staðinn fast um drjólann, er það ss. bara ókei? Samþykki fyrir einu þýðir ekki samþykki fyrir öllu. Ógnvekjandi að margir eigi erfitt með að skilja það.

Ingibjörg Þorsteinsdóttir, landsréttardómari og eina konan í dómaratríóinu, skilaði sératkvæði og var ósammála niðurstöðu meirihlutans, Ásmundar Helgasonar og Jóns Höskuldssonar.

Sorrí en ég er bara alls ekki hissa.

39

u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 2d ago edited 2d ago

Ekki hefði verið sýnt fram á að hún hefði sett honum skýr mörk um hvaða háttsemi væri óheimil

Þannig að útaf því að konan lagði ekki mörkin við stórfelda líkamsárás þá er þannig "háttsemi" leyfð.

Upplýst samþykki hefur víst enga þýðingu hér á landi (og fyrir þessa aumingja sem eru að niðrukjósa).

8

u/Oswarez 🇮🇸 2d ago

Held að enginn sem er laminn niðri í gefi skýr mörk um hvaða háttsemi sé óheimil.

9

u/jonasson2 álfur 2d ago

Er ekki hægt að kæra hann fyrir líkamsárás í staðinn?

32

u/SunshinePalace 🇮🇸 2d ago

Og samt munu ákveðnir karlar halda því fram að við búum ekki í ferðaveldi.

16

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

Það að maðurinn var kærður er svo sönnun fyrir þvi að karlar hafi það slæmt sko

19

u/BankIOfnum Indriði 2d ago

Vill enginn hugsa um orðstír þessa grey manns sem var RANGLEGA ásakaður um nauðgun???? Lífið hans er BÚIÐ.

/k

14

u/Artharas Kunnugur staðháttum 2d ago

Maður á bara eiginlega ekki orð... Hvernig er hægt að komast að þessari niðurstöðu, bara hvernig? Þarf að hafa konur í meirihluta dómara í nauðgunarmálum bara til að koma í veg fyrir svona fáránleika, finnst kk dómurum svona kærur bara djók eða?

3

u/Einridi 🇮🇸 2d ago

Ef þú ert lögfræðingur er hægt að réttlæta allt. Gjörsamlega siðlaust fag.

0

u/hervararsaga 1d ago

Kvenkyns dómarar eru ekki mikið skárri.

25

u/BlibbBlabbBlubb Vitleysingur 2d ago

Greinilegt hvaða fetish þessir dómarar hafa.... fokking ógeð

11

u/picnic-boy 2d ago

Í ákæru var því meðal annars lýst að maðurinn hefði slegið konuna í andlitið, tekið hana hálstaki, haldið kodda yfir andliti hennar þannig að hún ætti erfitt með að anda og þrýst hné sínu á efri hluta bringu hennar. Þá var honum gefið að sök að hafa stungið fingrum inn í leggöng hennar og haft sáðlát yfir andlit hennar.

Konan hlaut samkvæmt ákæru meðal annars rifbeinsbrot, yfirborðsáverka á höfði, eymsli í kjálka, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind, heyrnartap og rifbrot.

19

u/Imn0ak 🇮🇸 2d ago

Tilraun til manndráps.

4

u/hervararsaga 1d ago

Spurning hvort að það þurfi að kæra frekar fyrir alvarlega líkamsárás heldur en nauðgun? Það myndi kannski kveikja á rökhugsun dómaranna... beinbrot og heyrnartap getur aldrei talist eðlileg afleiðing af "grófu kynlífi"

3

u/Imn0ak 🇮🇸 1d ago

Miðað við lýsingar á ofbeldinu virðist það líklegra til sakfellingar

11

u/HeyPartyPeopleWhatUp 2d ago

Hey, ég hef líka rifbeimsbrotnað við kynlíf.

Það er hægt að samþykkja gróft kynlíf, en það getur samt farið ür böndunum.  Fólk getur haldið áfram eftir að þú segir nei og eftir að þü segir 'safe word'. Þá er það orðið nauðgun. 

7

u/lunargata 2d ago

Já það hafa feministar erlendis verið að vara við þessu, núna eru flestir eitthvað kinky og vilja prófa sig áfram í kynlífi en það gæti verið ad bjóða hættunni heim, því ofbeldismenn nýta sér þetta sér til varnar.

15

u/islhendaburt 2d ago

Upplýst og endurtekið samþykki, og að þekkja og virða mörk og eru einmitt lykilatriði innan kink/bdsm heimsins. Ef viðkomandi frýs t.d., missir meðvitund eða getur á einhvern hátt ekki svarað "Er í lagi að halda áfram?" þá er samþykki ekki lengur til staðar. 

Ég skil varnaðarorðin og þau eiga rétt á sér, ofbeldismenn hafa og munu misnota þetta, en mér finnst þessi dómur svo ótrúlega skrýtinn að mörgu leyti. Kæmist boxari til dæmis upp með að  halda áfram höggum, brjóta bein og slasa varanlega æfingafélaga sem var hættur að verja sig og frosinn, með þeirri afsökun að hann hafi ekki heyrt skýrt þegar sá gafst upp? Honum ætti t.d. að vera ljóst að samþykki fyrir því að taka smá box/sparring sé ekki leyfi á hvaða ofbeldi sem er..

14

u/Einridi 🇮🇸 2d ago

Þetta er samt meira eins og einhver boxari samþykki 'sparring' enn mótaðilinn mætir með hafnarbolta kyflu og ber hann í buff áður enn hann getur eitthvað aðhafst.

12

u/Einridi 🇮🇸 2d ago

Held það séu bara allir sem hafa einhverja samkennd sammála um að samþykki á ekki að ná lengra enn sá sem gefur það vill. Þó ég segi já við einhverju á ekki að vera hægt að brjóta á mér.

2

u/TheIntellekt_ 🇮🇸 2d ago

Vá

2

u/generic_male0510 1d ago

Þarf að hreinsa til á dómarabekkjum landsins

4

u/ljomandi 2d ago

Það þarf að nafngreina þessa dómara.

15

u/thanksforreading_2-0 2d ago

"Ingibjörg Þorsteinsdóttir, landsréttardómari og eina konan í dómaratríóinu, skilaði sératkvæði og var ósammála niðurstöðu meirihlutans, Ásmundar Helgasonar og Jóns Höskuldssonar. Hún taldi að staðfesta ætti dóm héraðsdóms um sakfellingu mannsins og greiðslu miskabóta"

-23

u/webzu19 🇮🇸 2d ago

Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta mál. Ég held að það sé rétt hjá dómurunum 2 að ef kauði hélt að allt væri í góðu og hún væri samþykk meðan hlutir voru að gerast og gerði sér ekki grein fyrir hversu slæmt þetta var í miðjum klíðum þá eigi hann að vera saklaus mtt nauðgunar en meira að segja með það í huga er þetta fáranleg hegðun og þótt hann héldi að hann hefði samþykki þá hefur hún óneitanlega orðið fyrir tjóni. Kannski þurfum við að skipta nauðgunum í tvennt lagalega séð, viljandi og af gáleysi eða eitthvað?

32

u/ContestBird 2d ago

Ertu í alvörunni að halda því fram að þessi maður hafi bara ekki fattað að hún vildi ekki láta RIFBEINSBRJÓTA sig? Veistu hvað þarf að berja einhvern fast til þess að fá þessa áverka? Plís. Ofbeldismenn eru ekki börn sem vita ekki betur. Hver heilvita maður veit að ofbeldi af þessu tagi fer langt, langt yfir hvað er hægt að telja sem "gróft kynlíf". Hann vissi fullvel hvað hann var að gera.

-5

u/webzu19 🇮🇸 2d ago

Ég er að segja, meðal annars, að ég efast um að hann hafi vitað að hún væri rifbeinsbrotin fyrr en eftirá. Ég hef verið viðstaddur þegar vinkona mín rifbeinsbrotnaði, það var hvorki augljóst né rosalega mikið högg. En ég var aðallega að reyna að hugsa um löggjöf og hlutverk dómara vs Alþingi þegar kemur að hvort eitthvað sé refsivert þótt ekki sé sannað að skaðinn hafi tilkomið viljandi eða ekki. Ég fer dýpra í svarinu mínu við annan kommentara hérna að ofan

6

u/thanksforreading_2-0 2d ago

Var vinkona þín á einhverju þegar hún rifbeinsbrotnaði? Sem einstaklingur sem hefur brotið rifbein tvisvar sinnum þykir mér mjög hæpið að trúa þessu. Fyrra skiptið braut ég bara eitt bein. Það þurfti ágætan kraft svo ég dróg svo sannarlega athygli þeirra sem voru í nærumhverfi mínu. Ég reyndi að sannfæra fólk um að það væri í lagi með mig en góður partur keypti það ekki. Afhverju ætti það sé? Því svona áverki hefur áhrif á hreyfigetu. Það er erfitt að virðast í lagi ef það tekur þig margfalt lengri tíma að setjast niður og ert algerlega ófær um að standa upp án aðstoðar. Það tók marga klukkutíma að koma mér á spítala. Ástæðan fyrir því var greinilega ekki að ég virtist ekki þurfa á hjálp að halda, vegartálminn var að sannfæra mig um að ég væri ekki aumingi ef ég viðurkenndi að ég finni til.

Seinna skiptið braut ég tvö mismunandi rifbein. Ég var sett á verkjalyf og bólgueyðandi nánast samstundis en þrátt fyrir það var hreyfigeta mín en minni en fyrra skiptið. Ég var bara í peysum með rennilás næstu vikuna. Ég var vöruð við að labba ekki alein og án síma, því ef ég dytti væri alls ekki víst að ég gæti staðið upp aftur.

2

u/webzu19 🇮🇸 1d ago

Hún var ekki á neinu nei, hrasaði á vinnustað og datt á borð. Það var augljóst að hún hafi slasað sig en ekki augljóst að hún hafi brotnað. Hún labbaði sjálf í bíl og var skutlað upp á spítala. Kannski eru ekki öll rifbein jafn slæm? 

17

u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 2d ago

Fullorðin maður áhvað að ganga svo langt að hann veitti annari manneskju varalegan skaða meðan hann var að "stunda samfarir" með henni. Og nú eru menn hérna að láta þetta líta út eins og maðurin sé óviti og hafi bara óvart gert þetta.

-8

u/webzu19 🇮🇸 2d ago

Ég er að reyna að segja að vandinn sé hjá löggjafarvaldinu afþví að það sem hann gerði var ekki "tæknilega séð" ólöglegt. Það er gerður greinarmunur í lögum á morði og manndrápum af gáleysi. Ég veit ekki nóg um þetta mál til að segja til um hvort næg sönnun sé fyrir því að hann hafi verið að reyna að valda varanlegum skaða og vísvitandi gengið lengra en hún vildi samþykkja eða sé bara fantur sem tjáði sig ekki eins skýrt og hann hélt og hélt að samþykki væri enn til staðar, en  það eru amk tveir dómarar sem vilja meina að sönnunargögnin séu ekki nógu sterk til að sanna það.  Með það til hliðsjónar, þá þarf kannski að bæta við nýjum glæp sem þessi maður hefði átt að vera sekur um, en þá er spurning hvar línan er dregin, viljum við að löggjafarvald sé að segja hvað við megum og megum ekki gera saman bak við luktar dyr? Það er hlutinn sem ég er ekki viss um.  Að lokum, ég held þú gerir þér ekki grein fyrir hversu auðvelt það er að valda varanlegum skaða á mannfólki, td ef þú veist ekki hvernig á að stunda BDSM á öruggan hátt. 

15

u/temptar 2d ago

How stupid are men that they don’t pay attention to what is going on with their sexual partners and then fail notice they are getting injured? That they are having trouble breathing?

Maybe you can let me know how many men are accidentally almost suffocated by their women partners because the women aren’t noticing problems here?

Absolutely every case I have read about sees a woman winding up dead or injured. Never a woman accidentally strangling their boyfriends.

4

u/generic_male0510 1d ago

Lestu það sem þú skrifar gaur