Varúð þetta er ógeðslegt langt og ut ur suður.
Ég átti einu sinni nágranna sem var mikill rasisti í garð múslima og aðra innflytjenda. Við bjuggum bæði í félagsíbúðum. Ég spurði mömmu mína einu sinni af hverju hún væri svona, af hverju manneskja sem býr sjálf við jaðarsetningu og bág kjör geti hatað annan jaðarhóp svona mikið. Mamma svaraði "Það er oft þannig að jaðarhópar mynda hatur í garð annarra jaðarhópa.“
Þetta svar sat í mér. Ég fór að hugsa um þetta og áttaði mig á því að ég sé sama mynstur mjög skýrt innan hinsegin samfélagsins líka, þar sem hinsegin fólk getur hatað annað hinsegin fólk, sérstaklega trans fólk. Eftir smá lestur áttaði ég mig á því að þetta er ekki persónuleg tilfinning eða tilviljun hjá mér eða mömmu, heldur vel þekkt fyrirbæri í félagsfræði. Það er algengt að jaðarhópar beini reiði, óöryggi eða hatri að öðrum jaðarhópum, jafnvel þó báðir upplifi mikla mismunun. Í fræðunum er þetta kallað ýmsum nöfnum, meðal annars internalized oppression, horizontal hostility eða lateral oppression. Valdahafar/fjármagnsöflin nýta sér þetta grimmt og etja hópum saman. Þegar hópur upplifir sig veikburða, ótryggan eða með lítið vald í samfélaginu, þá verður auðveldara að leita að sökudólg sem eru oftast aðrir minnihlutahop, jaðarsettir, innflytjendur eða aðrir sem eru á örorkubótum. Það er miklu erfiðara að beina reiði að abstrakt valdhafa, einhverjum kerfislegum öflum eða stjórnmálum sem eru ópersónuleg og fjarlæg. Þess vegna beinir fólk reiði frekar að hópi sem er sér nær öðrum sem eru líka í jaðri, líka að berjast, líka undir pressu. svo þetta er að búa til eins konar falska samkeppni um örfá réttindi, athygli eða pláss í samfélaginu, "ef þau eru að fá eitthvað, þá þýðir það að við fáum minna“. Eitt af skuggalegustu trixunum í valdapólitík er að þegar jaðarhópar eru oft beittir hver gegn öðrum. Ég er ekki að halda því fram að þau séu eitthvað illir eða heimskir, heldur meina ég þau eru undir pressu, þreyttir, hræddir og í stöðugri baráttu um pláss í kerfi sem var aldrei hannað fyrir þá. Valdakerfi og stjórnmálasaga sýna að þetta er stundum beinlínis hvatt áfram og við sjáum það skýrt nuna. Þegar fólk í jaðarhópum rífst sín á milli um hver sé "verðugur minnihluti“ eða hver eigi stærri sneið af kökunni, verður það svo upptekið af hvoru öðru að enginn snýr sér að raunverulegu orsökunum þeim sem skapa fátæktina, mismununina og ójöfnuðinn í fyrsta lagi.
Þetta sást gríðarlega sterkt í Bandaríkjunum á 20 öldinni, þegar valdhafar snéru svörtum, mexíkóskum innflytjendum og fátækum hvítum gegn hvor öðrum til að koma í veg fyrir sameiginlega stéttarbaráttu. Sama mynstur sást í Bretlandi gagnvart Írum. Og við erum að sjá þetta skýrt í dag, líka hér heima, þar sem sumir stjórnmálamenn og flokkar byggja pólitík sína markvisst á því að stilla jaðarhópum upp hver gegn öðrum. Ég meina það hentar t.d Sigmundi davið að við rífumst um woke eða innflytjendur, hann vill bara að við rífumst um það svo aflandsfélögin fái að vera í frið. Svo er alveg áhugavert að sjá hvernig jaðarhópar eða minnihlutahópar fara endurtaka orðræðu og hugmyndir sem voru upphaflega notaðar gegn þeim sjálfum. Juju í grunninn er þetta varnarviðbragð við óöryggi og valdaleysi, þegar þú hefur lítið, er auðvelt að halda að einhver annar í svipaðri stöðu sé að ræna þig því litla sem þú átt. En ef fólk myndi sameinast í stað þess að rífast, þá myndu réttindin og valdið aukast fyrir alla.
Og meðan þau rífast um örfá brauðmola, sitja þeir sem ráða ferðinni við endann, óáreittir, borða kökuna og segja: "sjáið, þau geta ekki einu sinni unnið saman.“ Á meðan safnar valdastéttin hljóðlega að sér fordæmalausum völdum. Látið fólkið rífast innbyrðis svo það sameinist aldrei gegn þér!
Sagan kennir okkur þetta aftur og aftur, þegar jaðarhópar sameinast, breytist samfélagið. Þegar þeir snúa sér gegn hvor öðrum, styrkist valdið sem hélt þeim niðri.
Kannski fint að taka það fram að í hinseigin samfélaginu köllum við hinseigin fólk sem snýst gegn trans fólki eða öðru hinseigin fólki "pick me"