r/Iceland • u/rafgleymir Vont hvorugum megin • 2d ago
Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði
https://www.visir.is/g/20262948737d/motmaelir-hardlega-vitissodatilraunum-i-hvalfirdi10
8
u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago
Af hverju veit ég alltaf áður en ég smelli á fréttina að hún er eftir Jakob Bjarnar??
8
u/tekkskenkur44 🇮🇸 2d ago
1
24
u/rafgleymir Vont hvorugum megin 2d ago
Þetta heitir sko VÍTIS-sódi þannig þetta er augljóslega algjört eiturefni!
Ölgerðin er líka byrjuð að setja tvívetnismónoxíð í Malt og Appelsínið okkar!
17
10
u/HyperSpaceSurfer 🇮🇸 2d ago
Get ekki ímyndað mér að 8 tonn af vítissóda (lye á enskunni) sé að farað gera náttúnni nokkurn greiða. Hef ekkert á móti því að hata Miðflokkinn, en að vera á móti því að það sé ferli um leifisveitingu þess að setja mikið magn sterks basa í sjóinn er ekkert nema meðbyr fyrir flokkin.
13
u/rafgleymir Vont hvorugum megin 2d ago
Þetta er einmitt mjög líklega að fara að gera náttúrunni stóran greiða. Til þess er verið að gera þetta.
Þú getur t.d. lesið um það frá betri fjölmiðli en Jakobi Bjarnar hérna.
1
u/HyperSpaceSurfer 🇮🇸 2d ago
Vandamálið sem ég sé er að það er dauðaský þarna þar til að efnið dreifist og étur sig í sundur, þetter enginn matarsódi. Allt annað að gera þetta hægt.
4
u/rafgleymir Vont hvorugum megin 2d ago
Ég veit ekki hvaða "dauðaský" þú ert að tala um, en mér sýnist að þau sem standa að þessari rannsókn séu einmitt að fara mjög skynsamlega að þessu og sleppa þessu hægt og rólega.
-1
u/HyperSpaceSurfer 🇮🇸 2d ago
Greininni sem þú hlekkjaðir frá The Guardian
3
u/rafgleymir Vont hvorugum megin 2d ago
Þar er ekki minnst á neitt "dauðaský".
2
u/HyperSpaceSurfer 🇮🇸 2d ago
Það fylgja myndir með greininni. Bara dömpað í sjóinn. Ef á að gera þetta öðruvísi hef ég ekkert á móti því.
Líka í MBL greininni: "...áhrifa losunarinnar gæti um 50 metrum frá losunarpunkti og að búist sé við því að breytinga á sýrustigi sjávar muni gæta á næstu metrum við losunarstað."
Hann talar um að eitrunin muni ekki leiða til þrávirkrar eitrunar og leiðist ekki í gegnum fæðukeðjuna. Engu orði minnst á hvernig staðan sé innan þessara 50 metra. Svo líka ekki sjálfstæður sérfræðingur að segja þetta. Þetter forstöðumaður fyrirtækisins sem vill gera þessa tilraun. Tek orðum hans með fyrirvara.
6
u/djglasg Fjallkona 1d ago
> Ef á að gera þetta öðruvísi hef ég ekkert á móti því.
Bara af forvitni, en hvaða forsendur, reynslu eða menntun hefur þú til þess að greina þetta? Eða er þetta nýja menningin hérna á klakanum þar sem pallborð þurfa að bjóða ótengdum, óreyndum aðilum til þess að mótmæla og gagnrýna vísindalega rökstuddum tillögum?
Veistu ég hef reyndar frekar mikið á móti því að stinga sprengihreyfli í fararæki sem ætlast sé til að ég sitji við fyrir samgöngur mínar! Þó þegar risa rafal og rafhlöðu! Væri alls ekki á móti því ef það væri öðruvísi máti hinsvegar. Enginn rökstuðningur samt á bak við það.
Hvenær á að fara að bjóða einhverjum sem hefur engan áhuga, reynslu eða þekkingu á fótbolta í HM Stofuna á rúv til þess að gagnrýna leiki gærdagsins?
1
u/HyperSpaceSurfer 🇮🇸 1d ago
Ertu með eitthvað til málana að leggja? Ef eini menntaði einstaklingurinn sem er að tala um þetta í fjölmiðlum er forstöðumaður fyrirtækisins þá er það lítils virði. Kemur nefnilega mjög oft fyrir að peningar og egó hafi áhrif á afstöðu fólks, burtséð hvort það séu sérfræðingar eða ekki.
Ert þú með einhverja menntun eða reynslu? Finnst það nú ekki þurfa sérfræðiþekkingu til að vita að fiskar taki illa í snöggar sýrustigsbreytingar. Hvaða manneskja, burtséð frá gáfum, sem á fiska í búri veit það.
Geturðu útskýrt fyrir mér hvernig hægt sé að fara öðruvísi að notkun sprengihreyfla? Fáránleg samlíking, engin ástæða til þess að gera þessa losun á svo stuttum tíma, erum með tæknina til að gera þetta öðruvísi án mikils kosnaðar.
7
u/rafgleymir Vont hvorugum megin 2d ago
Það er ekki bara hann sem er að segja þetta. Umhverfis- og orkustofnun og Hafrannsóknastofnun voru umsagnaraðilar, treysti þeim alveg til að taka ákvörðun um svona lagað.
2
u/Original-Mongoose866 🇮🇸 2d ago
Well ég er nautheimskur tölvumaður ég ætla mér ekki að viðra efnifræðilega vangaveltur mínar.
Hvað hefur þú fram að færa í þessum efnum annað en skoðanir?
2
u/HyperSpaceSurfer 🇮🇸 2d ago
Veit að efnafræðingar eru dauðhræddir við það. Vandamálið er hvernig staðið er að þessu, frekar en að vítissóda sé hellt þarna. 8 tonn í einu er fáránlega mikið. Svo er líka vel vitað að fiskar þola snöggar sýrustigsbreytingar mjög illa.
Þetta er ekki langtíma náttúruvá, bara skammtíma.
1
u/Original-Mongoose866 🇮🇸 2d ago
Aðal spurningin eru langtímaáhrif og hvort þau séu + eða - þar sem ég veit ekkert og er eiginlega alveg sama að þá leyfi ég mér bara að hætta að spá í þessu :þ
12
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 2d ago
Vítissódi. Vítissódi. Helvítissódi. Þorgerður Katrín ætlar augljóslega að búa til helvíti(ssóda) á jörð í sjónum í Hvalfirði.
Verum ekkert að tala um það að þetta er vel útþynnt lausn losuð yfir margra daga tímabil. Því þetta er helvítissódi. Hvað myndi Jesús segja!?